sko, á föstudaginn vorum við Sarah og Elín að fara úr vinnuni, svona um 11 um kvöldið..
bakútgangurinn úr Zara er akkurat í svona stórt port þar sem einmitt kringlukráin er staðsett..
og þegar við erum að labba þarna þá sjáum við nokkra kalla (já ég segi kalla því þetta voru menn á aldur við pabba.... sorrí pabbi) og þeir byrjuðu strax eitthvað að kalla á okkur... svo var búið að setja upp svona stórt hlið, og við vorum öðru megin og þeir hinu megin, og við stóðum í smástund að reyna að átta okkur á hvernig við kæmumst út.. þá kemur einn kallinn uppað grindverkinu og spyr, með svona ógeðis fyllerísrödd hvort við stelpurnar höfum séð göndul sem nær í gegnum grindverk (orðrétt....)
og við vorum allar voða þreyttar eftir langan dag þannig ég sagði bara; tjah það er þá ekki stórt grindverk..
og svarið sem ég fékk var; hefuru fengið heilan carlsberg yfir þig mellan þín?
og fleiri svona skemmtilegar athugasemdir um hversu feitar við værum og svo ótal margt ekki fallegt...
mín spurning er: halda karlmenn virkilega að það sé heitasta pickup línan í dag að tala um typpið á sér?! og að það sé bara það sem virki 100% á ungar stelpur...
og hver gaf þeim þann rétt að kalla okkur mellur bara því okkur langaði ekki að tala við þá, lærið að taka höfnun fíbb
svo fór ég líka að hugsa.. ætli þessir menn eigi ekki konu og börn heima? ætla rétt að vona að pabbi minn sé ekki svona á tjúttinu....
-Andrea, ó svo þreytt á lífinu